Guðm. Bjarki Halldórsson
Netfang: bjarkih@simnet.is
GSM: 8634234
Lén: www.bjarkih.org
Skilmálar
Flestar myndirnar á síðunni er hægt að panta á striga og fleiri vegu í ýmsum stærðum. Sendið mér línu og við finnum út hentuga stærð og verð.
Vinsamlega virðið höfundarrétt, einungis má nota myndir af þessari vefsíðu að fengnu skriflegu leyfi.
|
| Bjarki - Guðmundur Bjarki Halldórsson
|
|
Um mig
Bjarki heiti ég, fullu nafni Guðmundur Bjarki Halldórsson. Fæddur árið 1974 á Akranesi og hef búið þar alla tíð, ef undan eru skilin árin 1995-1999 en þá bjó ég í Reykjavík.
Ég er lífeindafræðingur (B.Sc.) að mennt og starfa sem slíkur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Ég er giftur og fjögurra barna faðir.
Ljósmyndaáhuginn kviknar
Ljósmyndaáhugann fékk ég vorið 2007 þegar ég keypti fyrstu DSLR myndavélina mína. Þetta var Canon Digital Rebel XT (350D) og fékk ég hana með kitlinsunni (Canon EF-S 18-55mm f3.5-5.6) einni saman. Fljótlega langaði mig í linsu sem hefði lengri aðdrátt og skipti ég þessari linsu því út fyrir Sigma 18-200mm f3.5-6.3 sama haust.
Einhverjum mánuðum síðar eignaðist ég svo ofur-gleiðlinsu (Sigma 10-20mm f4-5.6) og opnaði hún fyrir mér algjörlega nýjar víddir. Stórt stökk var tekið í janúar 2009 þegar ég eignaðist 2 frábærar L linsur (lúxus linsur) frá Canon. Vorið 2010 eignaðist ég svo notaða Canon 5D og var það gríðarlegt stökk til viðbótar.
Þannig að með sanni má segja að tækjabúnaðurinn fari ávallt batnandi, auk þess sem þekking og reynsla mín fer ávallt vaxandi. Auk persónulegra æfinga hefur netið verið mergsogið í þekkingarleit og alltaf er maður að bæta einhverri þekkingu í "bankann".
|

...
|
<< Til baka á forsíðu << |