Ég get tekið að mér að setja upp og viðhalda vefsíðum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Smellið endilega á myndirnar hér til hægri og vinstri á síðunni til að skoða nokkrar af þeim síðum sem ég er með á mínum snærum og skoðið það sem liggur undir með því að smella á hvern link fyrir sig. Hafðu svo endilega samband ef þig eða fyrirtækið vantar heimasíðu. Síðurnar eru unnar í HTML ritli og er þeim viðhaldið af mér sjálfum. Þannig að myndir og annað efni er sent til mín og ég sé um að koma því á síðuna - hröð, hagstæð og góð þjónusta.
VERÐLISTI
(útgangspunktar)

  • Stofngjald: 35000-50000 krónur (uppsetning og hönnun á síðu - verð fer eftir umfangi). Innifalið: Lén (.com,.org,.net eða sambærilegt) og hýsing fyrstu sex mánuðina.
  • Mánaðargjald: 2000-???? krónur (fer eftir umfangi og virkni síðu). Hýsingin sjálf kostar 2000 krónur á mánuði og síðan kostar 1500 krónur/klst öll vinnsla á efni (t.d. myndvinnsla, innsetning frétta o.s.frv.). Rukkað tvisvar sinnum á ári (þ.e. á 6 mánaða fresti), en stærri verk eru rukkuð um næstu mánaðamót eftir að þeim er lokið. Annars er þetta samningsatriði og veltur m.a. á umfangi síðu.
  • Mætt á staðinn, teknar myndir og/eða vídeó (4000-7000 krónur (fer eftir magni og umfangi) - miðast við Akranes og 1 klst). Svo 1500 krónur/klst fyrir úrvinnslu á efni. Ath. að sérstaklega vídeóvinnslan er tímafrek.
  • Ég legg mig fram um að veita topp þjónustu á mjög sanngjörnu verði. Þau verð sem hér koma fram eru ekkert heilög, þau eru samkomulagsatriði (sem m.a. velta á umfangi síðu o.þ.h.)
Munið að þetta eru útgangspunktar, semja má um einstaka hluta.

Hafið endilega samband og við förum yfir málin :)

Með kveðju, Bjarki



<< Til baka á forsíðu <<